Heimilisþrif
Við hjá SK skipulag & þrif bjóðum upp á vönduð heimilisþrif sem eru sniðin að þörfum hvers heimilis. Hvort sem þú óskar eftir reglulegum þrifum eða ítarlegum þrifum leggjum við áherslu á vandvirkni, fagleg vinnubrögð og persónulega þjónustu.
Þú velur þá þjónustu sem hentar þínu heimili – við sjáum um restina.
Almenn heimilisþrif
Almenn heimilisþrif henta vel fyrir reglulegt viðhald heimilisins. Við förum yfir helstu rými og yfirborð með það að markmiði að halda heimilinu hreinu, snyrtilegu og notalegu.
Almenn þrif fela meðal annars í sér:
-
Eldhús og yfirborð þrifið
-
Innréttingar þrifnar að utan
-
Baðherbergi þrifið vandlega
-
Speglar þrifnir
-
Þurrkað af aðgengilegum yfirborðsflötum
-
Gluggakistur þrifnar
-
Gólf ryksuguð og skúruð
Regluleg heimilisþrif eru tilvalin fyrir þá sem vilja létta sér hversdagsverkin og njóta þess að koma heim í hreint og notalegt umhverfi.
Hægt að bæta við gegn gjaldi:
-
Þrif á bakaraofni að innan
- Þrif á ísskáp/frysti að innan
- Þrif á eldhúsinnréttingum að innan
Við sjáum um þrifin
Öll heimili eru ólík og því getur umfang þjónustunnar verið mismunandi. Við leggjum áherslu á að finna lausn sem hentar þínu heimili og þínum þörfum.